Equilibrium.... I fucking wish!

Ekki gera ekki neitt!!

21.12.2010 03:59:24 / nannsla

useless

Mér finnst ég vera useless, lowerclass-bottomclass, ómenntuð, unqualified, atvinnulaus og fátæk. Atvinnan sem er auglýst krefst menntunar sem ég hef bara ekki. Ég hef aldrei skoðað bókhaldskerfi, launabókhald, kann ekki á expresso vélar, hef enga reynslu þjóns og hef enga menntun sem nýtist í starfi...ég er listamaður og alls ekki mjög virk sem slíkur. Ég er single og barnlaus, á atvinnuleysisbótum, fæ fjárhagsaðstoð frá foreldrum mínum, ströggla við að kaupa jólagjafirnar, barnaleg, lítil og aum. Ég er einmana and then some.

Ég veit ekki hvort það er allt í hausnum á mér en mér finnst flest það sem kemur út úr systur minni vera niðrandi og með það að markmiði að láta mig finnast einskis nýt fyrst hún er komin. Hún hatar mig og það bara lekur út frá henni. Ég er ómöguleg, alls ekki góð fyrir fjölskylduna. Lélegt barnabarn, léleg dóttir, léleg frænka og léleg systir. Ég er gallað eintak! Já og ekkert bilað góð sem vinkona... Ef það væri hægt að fá vinnu við svefn eða fá verðlaun fyrir mestann svefn I would be the best candidate og rúlla allri keppni upp ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2010 12:14:45 / nannsla

...lifnað við

Held mig langi til að tjá mig hér. Ég rekst stundum á gamlt blogg frá mér á google og finnst fáránlega gott að lesa það og sjá hvaðan ég kem og hvernig mér tókst það. Ég er á góðu róli í dag og er hamingjusöm.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2009 19:40:10 / nannsla

Allt í blóma:)

Já ég á afmæli í dag. Er orðin 28 ára og mjög ánægð með það:D Ég vaknaði bright and early kl 10 og hófst handa við að undirbúa kaffið...fór í Nettó, bjó til heitann rétt, britjaði ávexti, lagði á borð og henti köttunum í útlegð til ömmu. Svo komu gestirnir og það komu allir sem höfðu boðað sig:d 16 alls....Einar og Auður komu með Atla 4 ára og Ólavíu 7 ára og ömmu, mamma var auðvitað og hjálpaði við undirbúninginn, svo kom Dísa með Alexander 2 ára og Þórunn með litlu Þórunni 2 ára, Hóa kom með Sigurðu Jökul 1 árs. Svo komu Inga og Sigrún Dóra og Sigrún Ella. Þetta var þvílíkt æðislegt afmæli að annað eins hef ég ekki upplifað mín 28 ár held ég bara :D Já og allar kveðjurnar sem ég fékk á facebook eru bara snilld:) Allt í blóma sem sagt og ég að springa úr gleði:!:

Ég tók slatta af myndum og ég ætla að setja þær inná Facebook sem fyrst:D Annars ætla ég bara að leggjast í leti núna þannig að ég kveð að sinni... peace out

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 16:08:39 / nannsla

Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá!

Heyrðu já það er smá stund síðan ég bloggaði síðast. Örugglega allir hættir að lesa blogg eftir að facebookdæmið kom:) Anyway ég ákvað að gá hvort ég myndi ennþá aðgangsorðið which I did:) Jæja smá update:

Kláraði haustönnina í VMA
Byrjaði vorönn í VMA
Sunna og Sigurgeir ætla að gifta sig í haust :D
Ég ætla að útskrifast jólin 2009 af myndlistarsviði
Er byrjuð að spila badminton 1 sinni í viku:) ætla að auka það ef Kristján Pétur fæ að búa til flokk fyrir 20-40 ára.
Stefni á sumarvinnu, það er planið en hvað verður veit nú enginn því vandi er um slíkt að spá í krepputíð þegar atvinnuleysi er geðveikt.
Ætla að sækja um listnám til BA í ítölskum skóla fyrir haustið 2010
Ætla að læra art therapy þegar BA er lokið, sennilega í Bretlandi.
Hvað svo bara veit ég ekki enda þykir mér þetta nóg komið af plönum:)

Hætt í bili en kannski maður hendi inn bloggi annað slagið....ef einhver les þetta rugl ennþá!!?
 

» 7 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 16:52:55 / nannsla

Too much of a good thing

Jæja ég bara engan vegin í blogg gírnum en bara varð að segja ykkur frá því að ég komst að því í dag að plús og mínus virkilega gerir mínus:$ Ég er sem sagt búin að skipta um skokkhring af þeirri einföldu ástæðu að brýrnar eru ekki lýstar og því ekki gæfulegt að skokka þar mikið eftir að kvöldar sem er að verða skratti snemma:( Anyway þá ákvað ég að safna saman smá hugrekki og láta vaða á eins og einn Skógarlundshrinn og lét vaða á laugardaginn var og gekk bara ágætlega. Tók svo annan hring á sunnudag og aftur gekk vel en þó fann ég fyrir aðeins í sköflungunum en ekkert svo tæki því að minnast á það. Ákvað samt að hvíla mig í gær en trompaði svo í morgun með hressu morgunskokki og var skrýtin eftir það. Svo fór ég í skólann-í hælum-og þegar líða tók á morguninn fór ég að finna til jamm mín hafði skokkað sér til tognunar í hásin:!: Og svona eftir á að hyggja hefði ég átt að slaka mér inní skokk rútínu á grjóthörðu malbiki en ekki að beisikklí að hlaupa á vegg:$ Þannig að núna má ég ekki skokka alveg næstu daga8| Jæja hætt að væla í bili........nei bíddu svo kemur í ljós að hælar eru betri en flatbota after all því þeir fara betur með hásinina8| Go figure!!!

Jæja nú er ég hætt að væla;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2008 19:36:30 / nannsla

Hér er ég. Hér er ég. Góðan daginn, daginn, daginn:D

Ég er þarna á mynd í skólanum mínum. Við erum þarna í fagi sem heitir Efni og aðferðir og kennarinn er Guðmundur Ármann og hann stendur vinstra megin við miðju með hvíta rúllu í hendinni. Já þeir sem ekki þekkja mig þá er ég lengst til hægri á myndinni:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 21:19:42 / nannsla

hæhæ:D

Hæhæ gott fólk. Já ég er á lífi:haha: Og það hefur heilmargt gerst, eðli málsins samkvæmt, síðan síðast8) Ég til dæmis gerði mig næstum gjaldþrota með fatakaupum í borginni góðu en réttlæti það með því að öll hin fötin mín voru orðin of stór:klikk: Þannig að núna á ég alveg slatta af fötum sem ég get verið í meðan ég skoða vísareikninginn og græt;) Anyway ég, mamma og amma keyrðum norður og ég beint í partý sem við Gyða héldum sameiginlega heima hjá mér...Geðveikt gaman!
Vikunni eftir þetta, ss fimmtudaginn 21. ágúst byrjaði svo skólinn og vá hvað það var gaman og er enn. Ég er skráð í fullt nám, 19 einingar bæði verklegt og bóklegt og svo eitt 3 eininga bóklegt fag í fjarnámi þannig að þetta verður þvílíki sigurinn þegar ég næ að klára þetta:haha: Og Kristín frænka hjálpaði mér að ákveða að leggja mig eftir því að komast inní Listaháskóla Íslands, ég var svolítið tvístígandi en það er búið, nú veit ég að þangað inn ætla ég og skal komast:D Svo hef ég djammað um hverja helgi síðan ég kom að sunnan og næstu tvær helgar eru djamm helgar líka þannig að ég er að setja met í most consecutive weekends djamming:D Æj ég var í löngu fríi þannig að I´m allowed;) Ég er rosalega syfjuð núna þannig að ég nenni ekki að fara lýsa past or future djammi né skólanum neitt frekar en aldrei að vita nema það verði stutt í næsta blogg og þá muni ég fara í frekari útlistingar....tala nú ekki um ef ég lifi af gjörninginn næsta föstudagskvöld sem verður by the way í beinni útsendingu:!: 


Sjálf verðlaunaafhendingin fer fram 19. september í Flugsafni Íslands á Akureyri og verður sýnt frá henni í beinni útsendingu Sjónvarpsins kl. 19.45. Við það tækifæri verður tilkynnt hver hlýtur heiðursorðu Sjónlistar fyrir einstakt æviframlag til sjónlistanna, en að þessu sinni verður það myndlistarmaður.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 15:49:00 / nannsla

Gaman gaman

Bara svona ykkur að segja þá var fimmtudagurinn æði og föstudagurinn even better:!: Nema ég held að laugardagurinn hafi toppað hina tvo sko jamm held það bara:haha: Not telling why:klikk: 

                But I am gonna tell you að ég fór í afmæli til Sigrúnar Dóru í gær og það var bara massa partý og gaman. Snilldin eina, var þar til rúmlega miðnættis og þá hitti ég Kolbrúnu úr Hagkaup og við fórum niðrí bæ. Og þar var ÆÐISLEGA GAMAN:!: Lets go again:haha: Þetta var bara þvílíka snilldin, fullt af fólki, ég náði nottla ekki að hitta Gumma á Nasa því þar var uppselt þegar við Kolbrún komum, en annars bara var þetta æðislegt kvöld. Og ég kom heim rétt fyrir fimm... Er í góðum gír í dag og langar í sund þannig að any volunteers give themselves up at the front desk;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 10:56:03 / nannsla

I feel like dancing under the stars and singing in the rain...

Hæhæ takk allir fyrir góða strauma á prófdaginn...það virkaði því ég náði bóklega mótorhjólaprófinu með 1 villu í fyrri hlutanum þar sem má vera með 2 og þrjár villur í seinni hlutanum sem má hafa 5 í:d Bara mjög sátt við það því ég vissi réttu svörin við villunum þegar ég fékk að sjá;) Ég fæ svo að fara í ökutíma þegar ég kem frá Reykjavík eftir um viku. Jamm það er planið að skreppa suður á morgun laugardag og koma aftur á laugardag eftir viku. Ætla að kíkja í búðir og hitta vini og svoleiðis..

Tvö ættarmót búin þetta sumarið. Annað var haldið helgina 18.-20. júlí í Ljósvetningabúð í Kinn og hitt var um versló á Dalvík. Bæði bara ágætlega heppnuð og bara skemmtileg. Svo er spurning um að kíkja á fiskidaga á Dalvík í kvöld:haha: held það gæti orðið athyglisvert bara...

Á miðvikudag fór ég svo í mælingu og vigtun niðrí Átak vegna átakskeppni Akureyringa. Það fór bara nokkuð vel sko. Hef náð af mér 30cm héðan og þaðan af líkamanum og einum 4 kílóum og rúmum 3% í fitu. Það er fínt en ég stefni hærra...eða lægra ef til vill betra orðað:haha: ætla að losna við 10-14 kg í viðbót og slatta af fituprósentu og ég er ekki að ætlast til að þetta gerist í gær heldur mun þetta nást á næsta rúma hálfa árinu. Það er planið alla vega.

Svo fer skólinn að byrja aftur og ég hlakka bara til, þó þetta verði strembið. Anyway ég vona að ég hafi skemmtilegar fréttir næst þegar ég blogga af suðurferð og einhverju skemmtilegu;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 13:32:51 / nannsla

Eye of the Tiger:D

Gærdagurinn var mér góður. Ég fór í bóklega mótorhjólaprófið þrátt fyrir að hafa ætlað að gugna á því svona miljón sinnum, did it anyway. Og það borgaði sig því ég náði:haha: og er rosa glöð með það. Svo fórum við Auður á brýrnar í gærkvöldi með það að markmiði að bæta bæði tímann okkar og að reyna að skokka alveg yfir og alveg til baka. Okkur tókst bæði, held að við höfum bætt okkur um einar 10-15 sekúndur á leiðinni yfir og við komumst alla leið til baka án þess að stoppa8) Annað kvöld verður markmiðið að ná að endurtaka leikinn, ekkert endilega á bættum tíma bara að komast alla leið... Jæja nú þarf ég að hætta því pabbi er lagður af stað frá Reykjavík og ætlar að gista hjá mér og ég hef ekki tekið til í mánuð8| so I better get going...bæ í bili

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 13:57:40 / nannsla

If you fail, then try, try again...

Hæ allir. Á morgun kl 15 ætla ég að þreyta bóklega mótorhjólaprófið í annað skiptið og mér þætti vænt um að þið senduð mér góða strauma á þeim tíma:d mig langar ekki að falla aftur8|

hey já og endilega skoðiði myndirnar mínar á http://flickr.com/photos/nannaholm/ og öll uppbyggileg gagnrýni er vel þegin því ég er nottla enn að læra:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 08:12:33 / nannsla

Smile! You're on candid camera

Ég er ekkert ógnar dugleg að skrifa svona að sumri til...en jæja hér kemur eitthvað.

Ég fór á ljósmyndanámskeið á vegum Pedromynda í gær, það var fyrra kvöldið af tveimur, og ég var að fíla það í tætlur. Seinna kvöldið verður annað kvöld og þá þarf ég að vera búin að klára heimaverkefnið mitt:) það er að taka myndir við ýmsar stillingar á vélinni og fleira sem ég nenni ekki að telja upp:) 

Anyway...þá er ég búin að búa til flikr account, þar sem ég mun setja svona artsí fartsí myndir eða þannig, og búin að setja inná picasa web albúm, sem eru svona fjölskyldumyndir og svoleiðis, þannig að ef ykkur leiðist þá getið þið rekið inn nefin þar:) have fun og ég mun pottþétt setja fréttir af námskeiðinu hér fljótlega... 
                                                                                                                        og já af einhverjum óskiljanlegum ástæðum og algjörlega óvart er ég með tvær picasa síður þannig að endilega skoðiði báðar. Crazycats3 eru gamlar eða eldri myndir og nannsla eru nýrri en mun færri myndir. Það er líka lokað albúm á picasa sem sýnir þyngdartap og ef þið viljið sjá það albúm þá commentiði bara hér og látiði mig vita og ég býð ykkur aðgang:) cya

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 01:36:41 / nannsla

ýmislegt bara

Heyrðu það hefur slatti gerst síðan síðast. Skrapp suður í viku og var hjá pabba. Fór í búðir og keypti mér föt og fannst það ekki leiðinlegt get ég sagt ykkur:haha: Ég þræddi búðirnar í Smáralind, Kringlunni og Laugaveginum bara til að máta föt:D Skrapp í breiðholtslaug, heimsóknir og bíó og ég veit ekki hvað. Ég og Hildur Erna skruppum á pöbbarölt niður í miðbæ Reykjavíkur og það var stuð. Við skoðuðum alla þá pöbba sem tengdust á einhvern hátt Bretlandi:) Fórum á The Celtic Cross, Dubliner, The English Pub og svo nokkra aðra sem tengdust Bretlandi á engann hátt, eins og...æj ég man ekki hvað þeir heita8| Anyway svo var ég driver fyrir þessa sömu frænku og vinkonur hennar sem fóru í afmælisveislu á Selfossi, earthquakecentral, sem sagt bara nokkrum dögum eftir skjálftann. Í veislunni skemmti Ingó úr veðurguðunum, einnig þekktur sem Ingó Idol. And I fell in love8| Ég er auðveld hvað það varðar greinilega:$
Ég fór líka í heimsókn til Sunnu og Sigurgeirs og Karenar dúllu, þau buðu mér í mat og við spiluðum tvö kvöld. Auðvitað spiluðum við Kana, fyrra kvöldið spiluðum við 65 spil og það var eitthvað svipað seinna kvöldið, bara gaman:haha: Þessi borgarferð var frábær því ég fór í endurkomu á Landsspítalann þar sem ég fékk alveg hreint brilljant skoðun:!: Bara eins brilljant og hægt er... og svo fór ég norður aftur.

Lífið hér á Akureyri er ekkert leiðinlegt sko. Það er sól uppá hvern einasta dag og ég þyrfti bara að vera duglegri að nýta mér það...þarf að ná mér upp smá lit öðrum ein dauða fölvanum sem ég hef haft núna í ein 6 eða 7 ár. Við Einar skráðum okkur í Átakskeppni Akureyringa, en hún stendur til 5. sept og úrslit verða tilkynnt 6. sept. Við keppum sem betur fer ekki í sama flokknum, ég er í 16-30 ára en hann 31-40 sem er eins gott því  hann er ekkert að lyppast áfram neitt neibb. Hann hjólar útum allt, labbar þegar hann fer ekki á hjóli, skokkar uppí fjall, lyftir og bara ég veit ekki hvað8| Á meðan ég fór í fyrsta tækjatímann minn í gær og ég get ekki greitt mér í dag:$ Hehe en það lagast nú víst fljótt. Ég á 16 kg eftir í target weight og það er markmiðið að helminga það með þessari keppni:haha: og þau úrslit verða tilkynnt 6. sept líka bara. Jæja ég er hætt í bili

ÓVER AND ÁT


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 23:06:35 / nannsla

í sól og sumaryl

Ég held að það sé kominn tími á smá uppfærslu á þetta. Takk fyrir góðar kveðjur það kemur mér alltaf á óvart hvað það eru  margir sem lesa þetta rugl í mér og eru svo æðislegir að hvetja mig til dáða. Takk takk.

Ég og mamma erum á passduty þessa viku því Bergdís og Styrmir skruppu til Danaveldis. hún til að skoða nýja skólann sinn og hann til að leita sér að vinnu og saman eru þau að skoða leikskóla fyrir litla herramanninn sem við mamma erum að passa...erum líka nottla að passa Ernu:D svo sem ekki mikið pass á henni, það er meira svona hún að segja okkur hvað við eigum að gera fyrir litla bróður:) gaman að því. Svo koma foreldrarnir aftur til landsins og norður fimmtudaginn 29. maí og ég keyri  suður fimmtudaginn 29. maí...mætumst örugglega á leiðinni8) Ég hlakka voða mikið til að fara þetta suður. Ætla að fara í búðir og kaupa mér föt, svo ætla ég að hitta þá vini mína sem búa í borg óttans og bara hafa það gott, fara í sund og sóla mig...so there better be sun and pretty damned good weather:haha: Anyway ég held ég verði í sirka viku jafnvel rúmlega og mæti svo bara heim í saumaklúbb fyrstu helgina í júní:) fjör

Jæja hætt í bili og farin í háttinn8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 19:08:11 / nannsla

Vává vá and I mean VÁÁÁÁ!

Ég náði að skila af mér fjórum fögum í VMA af sex þrátt fyrir að hafa næstum hætt tvisvar. Fögin sem ég skilaði eru Anatomía, teikning beina og vöðva, Sjónlist, myndbygging og litafræði, Fjarvíddarteiknun og Módelteikning. Ég er búin að fá út úr þremur fögum og fékk:
Anatomía 8
Sjónlist 8
Módelteiknun 9
                                            Meðaleinkun er 8.3 hence the váfactor
Við bætist:
Fjarvídd 8
sem gerir meðaleinkun uppá 8.25 og ég bjóst ekki einu sinni við því að klára!!

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 102527
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 21 desember
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Virkir bloggarar